Gleðileg jól

Hálf fimmtug og orðin eldgömul!

Maður verður víst að sætta sig við það að með hverjum deginum verður maður degi eldri og svo þegar dagarnir líða verður maður allt í einu orðin allt of gamall. Mér finnst þrítugs aldurinn vera nálgast óðum þrátt fyrir að ég hafi verið 16 ára "um daginn". Þetta líður svo hratt. En það má samt líta á þetta á þann veg að maður geti þakkað þó fyrir það að hafa náð ákveðnum aldri því það eru því miður ekki allir sem ná því!!  Var á næturvakt í nótt og næstu þrjár þannig að hin árlega fermingaveisla (x4) verður því á sunnudaginn. Ég gerðist nefnilega svo heppin að giftast inn í veisluglöðustu fjölskyldu Íslands. Þ.e. í hvert sinn sem einhver á afmæli er haldin 40-50 manna veisla. En ég verð þó að viðurkenna að afmælin mín eru miklu skemmtilegri eftir það, enda fæ ég miklu fleiri pakkaMoney mouth. En ég hlakka alveg óskaplega til þess að mæta í vinnuna í kvöld og heyra fagran afmælissöng stimpilklukkunnar og fá óskipta athygli fólks sem mætir í vinnuna á sama tíma og ég. Enda þekkt fyrir athyglissýki frá blautu barnsbeini. Tek það samt fram fyrir þá sem ekki þekkja mig að ég er að grínast. 

Að lokum vil ég þakka þeim yndislegu vinum mínum sem eru búnir að vera senda mér sms afmæliskveðju í dag og hvet aðra að gera slíkt hið sama hehehe S. 846-3120!!!!!

Bless í bili

Rannveig sem er 25 ára í dag! 

Rannveig Elíasdóttir
Said Rannveig Elíasdóttir
Thu, 9 Aug 2007 14:58

6 dagar!!

Já það eru bara 6 dagar þangað til að ég fer út til Spánar með famelíunni. Víkingur spyr á hverjum morgni hve margir dagar eru núna þangað til við förum. Þetta verður alveg æðislegt. Við förum með mömmu, pabba og bróður mínum og ætlum að vera í íbúð sem foreldrar mínir eiga. Ég er sko alveg búin að ákveða það að slaka þvílíkt á. En veit svo sem ekki hve mikil afslöppun það verður að vera með 2 gríslinga með sér. Það er þó strax betra þegar elsku mamma kemur meðCool.

Einar og Víkingur byrjuðu í sumarfríi í dag og þetta er svo ljúft líf. Ég er búin að bíða svo lengi eftir þessari stundu{$lang_emotions_tongue-out}.  

En nú tekur við brjáluð dagskrá í kvöld og á morgun. Við Einar erum nefnilega 5 ára stúdentar. Gamli bekkurinn minn er að koma til mín í kvöld og Einar fer að hitta sinn hjá Kára. Það verður gaman að hitta alla aftur og heyra hvað allir eru búnir að vera gera. Jæja nú fara þeir að koma svo ég ætla að hætta.. (já þeir því að ég var bara með strákum og einni stelpu í bekk).

Kveðja

Frú Rannveig hjúkrunarfræðingur 

Rannveig Elíasdóttir
Said Rannveig Elíasdóttir
Thu, 14 Jun 2007 20:56

Ljúfa líf, ljúfa líf!

Ég get alveg sagt ykkur það að það er snilld að vera heimavinnandi húsmóðir. Ég veit eiginlega ekki hvað ég var að hugsa að fara í þetta háskólanám þegar hægt er að hafa það svona gott. Verst að maður fær ekkert borgað fyrir það. Money mouth

Við fjölskyldan fórum í algjöra ævintýraferð um helgina austur í Þistilfjörð í sveitina hennar Kristjönu. Þetta var auðvitað frábær upplifun fyrir strákana. Fórum auðvitað að sjá lömbin, hestana og kisu og hunda. Svo fórum við að veiða þar sem Víkingur veiddi þessa fínu fiska (samt bara litlaWink) og borðaði svo í kvöldmatinn. Og daginn eftir fórum við að sjónum þar sem Víkingur hljóp galvaskur út í sjóinn og var rennblautur. Þetta var alveg frábær ferð.

Það styttist óðum í útskriftina mína sem verður á laugardaginn og þá má maður loksins fara kalla sig hjúkrunarfræðing. Annars er alveg brjálað að gera hjá okkur næstu daga því strax eftir útskrift tekur við heilmikil dagskrá í kringum MA því við erum 5 ára stúdentar í ár. Þannig að það verða stanslaus partýhöld næstu viku og Jón Steinn bróðir er svo að útskrifast þann 17. júní og svo verður bara flogið beint út til Spánar þann 20. júní.

Jæja hef ekkert meira að segja í bili, nema að ég er hætt að nenna biðja um comment.......ég fer bara að commenta sjálf bráðumCry á mín eigin skrif!

Bæ í bili

Rannveig

 

Rannveig Elíasdóttir
Said Rannveig Elíasdóttir
Mon, 4 Jun 2007 15:53

Halleluja!!

Ég hef hér frá og með deginum í dag lokið ollu því umstangi og veseni sem fylgir því að vera í háskólanámi (þ.e. fyrir utan útskriftina sjálfa). Í dag er merkilegur dagur því að ég ásamt ástkonum mínum þremur (eða stelpunum sem ég hef varið nánast öllum mínum tíma með sl. vikur), Eydísi, Heiðdísi og Kristjönu, fluttum stórglæsilegan og áhugaverðan fyrirlestur um rannsókn okkar: Fólasín fyrir allar konur!

.......var að spá í að senda e-mail til símans til að láta breyta mér í: Rannveig Elíasdóttir, hjúkrunarfræðingur en kannski ætti ég að bíða þangað til 9. júní, þ.e. á útskriftadaginn sjálfann. Maður verður sko að uppfæra svona merkilegar upplýsingar.

Eins og glöggir lesendur (sem eru fáir miðað við commentin!!) sjá er ég afar stolt af þessum atburði sem átti sér stað í dag. Ekki bara af því að fyrirlesturinn væri svo frábær heldur líka af því að þær stöllur, ástkonur mínar, ákváðu að láta mig flytja hann sem og ég gerði. Ástæðurnar fyrir því að ég ætti að flytja fyrirlesturinn voru margar, s.s. keppti í ungfrú Norðurland, fékk 10 í tjáningu í MA, lék oftast aðalhlutverk í leikritum í barnaskóla, er sætust........ bíddu bíddu!! Við þessi orð Kristjönu áttaði ég mig á því að ég lét plata mig út í þessa vitleysu. Kristjana mín, þó að ég sé auðtrúa þá sá ég í gegnum þetta!!

En sem betur fer hafðist þetta allt saman og gekk bara ljómandi vel. Elsku Eydís, Kristjana og Heiðdís...... þið eruð bestastar!

Kv. Rannveig að fara út að borða með bekknum í tilefni dagsins

Rannveig Elíasdóttir
Said Rannveig Elíasdóttir
Thu, 24 May 2007 17:27

Síðustu metrarnir!!

Jæja þá er þetta allta að verða búið. Erum að fara með meistaraverkið í prentun á eftir ef allta gengur að óskum og mun ég þá vera komin í formlegt frí þangað til 18. maí. En þá er næst á dagskrá heimilið mitt, þ.e. að taka til og þrífa. Það er nefnilega eitt af því sem hefur setið á hakanum undanfarna daga eins og svo margt annað.

Ég held ég verði þó fyrst að safna smá kröftum því það tekur lýgilega á að setjast niður dag eftir dag vikum saman og skrifa stanslaust um sama efnið og ekki nóg með það heldur líka að pikka inn sömu tölurnar aftur og aftur og vitlaust og gera þetta aftur og aftur og...... Það getur tekið á!

Annars hefur þetta gengið bara nokkuð vel hjá okkur stelpunum, enda erum við svo frábærar saman. Við vorum búnar að undirbúa okkur fyrir vinaslit og alles vegna sögusagna sem gengu frá gömlum árgöngum. En við urðum nú bara nánari fyrir vikið og eiginlega veit ég ekki alveg hvernig ég á að fara að því að hitta þær ekki lengur á hverjum degiCry

Bið að heilsa í bili 

Rannveig Elíasdóttir
Said Rannveig Elíasdóttir
Fri, 4 May 2007 08:56

Gaman gaman

Búið að vera eitthvað svo mikið að gera hjá mér núna (aldrei þessu vant). Endalaust verið að bjóða manni frítt að borða og svona, það er sko ekki amalegt að vera útskrifast sem hjúkrunarfræðingur í dag. Allir að kynna fyrir manni sjúkrahús og félagsmál og svoleiðis og auðvitað förum við út að borða í leiðinni Wink. Ekki skrítið að þetta sé svona feit stétt! Nota bene ég ætla ekki að lenda í þeim flokki. 

Gengur bara ágætlega með lokaverkefnið, eina hindrunin eru veikindi sona minna. Þeir eru núna búnir að skiptast á að vera veikir í um 3 vikur. Þannig mamma þarf að vera heima að hjúkra þeim.

Rannveig Elíasdóttir
Said Rannveig Elíasdóttir
Fri, 30 Mar 2007 00:45

Kominn tími til að vakna upp af vetrardvalanum!

Ég er búin að vera pirra mig lengi á því að ég er búin að skrá mig hingað og þangað með bloggsíðu en er síðan aldrei að blogga. Ég ætla nú ekki að láta fólk halda að ég lifi það innihaldslausu lífi að ekki sé vert að uppfæra fréttirnar nema á hálfs árs fresti. Málið er nefnilega það að tíminn er alltaf svo lítill til að gera hluti sem ekki falla undir lífsnauðsynjar daglegs lífs. Loksins þegar við hjónin höfum lokið kvöldverkunum, þ.e. að svæfa, vaska upp, þvo þvott og ganga frá þvotti en orku mælirinn kominn ansi neðarlega og því afar freistandi að hlamma sér í sófann og horfa á aðra lifa sínu lífi. Það efni sem fyllir að mestu dagskrá sjónvarpstöðvanna í dag er nefnilega svo kallað raunveruleika sjónvarp þar sem áhorfandinn getur fylgst með öðrum gera hluti sem hann ekki getur gert sjálfur.

Annars finnst mér alveg að vera komið nóg af þessu raunveruleika þáttum. Flestir, ef ekki allir, þeirra snúast um það eitt að niðurlægja fólk með höfnun þannig að sá sem horfir á geti haft gaman af því að fylgjast með mismunandi viðbrögðum fólks við þeirri tilfinningu að vera hafnað. Þarna er verið að spila með mannvonsku okkar áhorfenda og að mínu mati ýta undir hana með því að gera það að skemmtiatriði að láta öðrum líða illa. Hver hefur ekki hlegið að því þegar lélega fólkið í Idol er að syngja? Ég sá einmitt viðtal við Simon í American Idol, sem einnig er framleiðandi þáttanna, þar sem hann sagði þau velja þau sem virkilega trúðu því að þau syngju vel og væru góð en væru svo ömurlegir söngvarar. Þetta er einmitt fólið sem líður mesta niðurlægingu í þessum þáttum og þeir velja þá sérstaklega til að gera þáttinn meira spennandi.

Ég verð þó samt að viðurkenna það að horfa á marga af þessum þáttum og detta inn í þá vitleysu að finnast það skemmtiefni að sjá leiðinlega stelpuna í america´s next top model vera senda heim.

Jæja þá er best að kíkka á imbann og velja mannúðlegasta sjónvarpsefnið!

Rannveig Elíasdóttir
Said Rannveig Elíasdóttir
Tue, 27 Mar 2007 22:59

Skólinn byrjaður aftur!!!

Jæja þá er skólinn byrjaður aftur og hið venjubundna líf tekið við eeennnnnn núna í síðasta skipti. Það er auðvitað nóg að gera og ég verð að segja eins og er að það er eiginlega stundum of mikið að eignast tvö börn á meðan maður er í háskóla. Ég viðurkenni það alveg að það koma tímar sem ég er hreinlega að gefast upp. En sem betur fer er ég með alveg ótrúlegan viljastyrk sem drífur mig áfram í gegnum slíkar hugsanir. Auðvitað fer maður ekkert að hætta þegar það er svona stutt eftir en þetta fer að taka enda.
    Það er samt alltaf gaman að hitta mínar yndislegu bekkjarsystur aftur því þær eru alveg frábærar. FF hópurinn auðvitað byrjaður í verkefnavinnu en það hefur gengið heldur illa í þetta skiptið því við hreinlega xxxxxx því ekki (þetta er rétti andinn svona rétt áður en við byrjum á lokaverkefninu*crazy*). En þetta er bara gaman. Jæja nú verð ég að halda áfram að dikta og eins og ég sagði bekkjarsystrum mínum....fyrst ég er að hafa fyrir því að röfla hérna vil ég fá comment!!!!!
Ps. don´t rein with me, I´m married!;)
Rannveig Elíasdóttir
Said Rannveig Elíasdóttir
Sun, 17 Sep 2006 15:46

Nýjustu fregnir

Hæhæ...ég er rosa duglegur bloggari!!! En svona smá fréttir af mér: ég er loksins búin í verknámi og nú á ég bara eftir að taka 3 próf í ágúst og þá er ég búin að ná því sem ég dróst á eftir við að unga út einu barni:D. Svo var ég auðvitað plötuð út í smá sumarvinnu en af því það var upp á barnadeild gat ég ekki sleppt því mér fannst það svo spennandi. Og ég er s.s. að vinna þá aðra hverja helgi núna. En það er nú bara svona rétt til að fá frí frá húsmóðurstörfunum.
Nú er brúðkaups undirbúningur í fullum gangi. Einar og Víkingur voru að máta föt í gær...rosaspennandi ég hlakka til að sjá þá í þeim:). Ég er náttúrulega löngu búin að velja mér kjólinn, gerði það einhvern tíma í apríl:D og fílaði mig ekkert smá vel. Ég var örugglega prinsessa í fyrra lífi. Þær sem þekkja mig frá því ég var krakki muna eflaust eftir prinsessu kjólnum mínum, ég notaði hann svo mikið að hann er orðinn slitinn. En alla vega þá mátaði ég held ég um 20 kjóla og auðvitað var það fyrsti kjóllinn sem ég fór í sem var valinn. Ég held að konan hafi haldið að ég ætlaði aldrei út. Svo er maður auðvitað farinn að spá á fullu í skreytingar og svoleiðis. Held að við séum búin að panta allt sem þarf að panta. Hildur og Jói ætla að stýra veislunni og það verður auðvitað svaka stuð.
Fínt í bili.....fleiri fregna er að vænta innan skamms!
Kv. Rannveig
- me myself
Rannveig Elíasdóttir
Said Rannveig Elíasdóttir
Fri, 23 Jun 2006 10:12

SOS

Nú verð ég að fara að gera eitthvað í mínum málum!! Hef átt við afar erfiða átröskun að stríða síðan í var lítill krakki. Nánar til tekið self-eating disorder þ.e.a.s. ég naga á mér neglurnar. Þennan ósið tók ég upp sem lítill krakka asni og hef ekki enn vanið mig af honum 24 ára að aldri. Í gegnum tíðina hef ég prófað ýmsar meðferðir eins og að nota naglalakk með vondu bragði en ég var fljót að venjast því og þegar upp var staðið fannst mér bara ágætt bragð af því. Einnig hef ég reynt að vera með bómullar hanska til að verja fingurna fyrir gráðugum kjammanum en var fljót að rífa þá af mér sökum óþæginda. Á undanförnum árum hef ég svo náð að hætta þessu í nokkrar vikur/mánuði í senn en hef í öllum tilvikum fallið. Nú stend ég uppi alveg ráðalaus*crazy*. Ef það er einhver þarna úti sem vill stofna með mér samtök fólks með self-eating disorder má hann gjarnan hafa samband!!
Weblog posted by me myself
Rannveig Elíasdóttir
Said Rannveig Elíasdóttir
Fri, 12 May 2006 13:05

Aaaarrrggg!!!

Jæja þá er mesta horror fagið á morgun*crazy*!! Búin að vera hjá múttu í allann dag að lesa á meðan hún hefur séð um Róbert og Einar haft ofan af fyrir Víkingi....þvílík móðir! Er nú búin að vera inni að lesa í að verða á þriðju viku og gjörsamlega farin að mygla. Held líka að heilinn sé að yfirfyllast af upplýsingum því mér finnast engar upplýsingar festast inni núna og það fyrir erfiðasta prófið. Vildi svo heppilega til að mamma bauð okkur í grill og nú ég og bíð eftir matnum fyrir framan tölvuna með rauðvínsglas til að róa taugarnar. En sem betur fer er maður farin að sjá fyrir endann á þessari prófatíð því þegar þetta helv.... er búið þá eru bara tvö ,,létt" próf eftir og svo þarf ég aldrei aftur að fara í svona mörg próf í einu;).
Weblog posted by me myself
Rannveig Elíasdóttir
Said Rannveig Elíasdóttir
Sun, 7 May 2006 18:17

Prófalestur byrjaður

Þá er ég komin af stað í prófalestri og á mér ekkert líf þessa daganna. Er búin að vera lesa í hand og lyflæknisfræði og er búin að vera að velta því fyrir mér hvort ég eigi ekki eftir að fá þennan og þennan sjúkdóminn. Maður getur orðið alveg hrikalega sjúkdómahræddur þegar maður er að læra um sjúkdóma. Og kannski meiri líkur á því að maður fái sjúkdóma akkúrat á þeim tímapunkti!! Alla vega greindist Einar með sykursýki daginn sem ég lærði um sykursýkislyf hjá lækninum sem greindi hann með sykursýki.... Tilviljun?? Kannski best að læra bara eitthvað annað*lol*.
.......ein heilaþvegin í próflestri
Weblog posted by me myself
Rannveig Elíasdóttir
Said Rannveig Elíasdóttir
Thu, 27 Apr 2006 00:27

Verkefni verkefni verkefni.......

Hvernig stendur á því að kennarar hrúga alltaf öllum skiladögum verkefna á síðustu vikuna fyrir próf?? Þetta er alveg dæmigert. Nú er allur bekkurinn minn að fara á taugum því við eigum að skila 7 verkefnum á þessari önn. Samt eigum við að vera samviskusamar og lesa okkar venjulegu 1000 blaðsíður fyrir hvern dag. Jú jú þetta er ekkert mál bara skipuleggja sig....jeah right. Held að engin geti skipulagt sig fyrir svona bull. Við létum nú aldeilis heyra í okkur við aumingja einn kennarann en ég stórlega efast um að það verði eitthvað tekið mark á okkur nemendapöddunum sem hafa engin völd. En svona er lífið við fáum víst engu um það ráðið.
Weblog posted by me myself
Rannveig Elíasdóttir
Said Rannveig Elíasdóttir
Wed, 19 Apr 2006 11:46

Gleðilega páska

Hvernig dettur manni í hug að borða mörg hundruð grömm af súkkulaði á einum degi? Vaknaði eldsnemma í morgun til að borða páskaegg með Víkingi og er búin að vera illt í maganum síðan. Og endirinn í þessum börnum að borða nammi. Ég held að Víkingur sé að verða langt kominn með sitt og að verða búinn með allt nammið og búinn að fá meira hjá ömmum sínum og öfum. En sem betur fer er þetta bara einu sinni á ári, ekki það að ég sé tilneydd til að borða súkkulaði maður bara er svo vitlaus að sleppa sér algjörlega í þessu áti þennan dag. Reyndar þegar ég fer að hugsa um það eru dálítið margir svona dagar á ári, svo segir maður alltaf: ,,þetta er nú bara einu sinni á ári". Það eru jól og áramót, bolludagur, páskar með kannski 4 fermingarveislum, svo auðvitað afmælisveislur með reglulegu millibili, útskriftarveislur, grillveislur og svona mætti lengi telja. Þegar allt kemur til alls er maður kannski að borða yfir sig 1/4 af dögum ársins. Kannski ekki skrítið að þjóðin sé að verða svona spikfeit.

Weblog posted by me myself
Rannveig Elíasdóttir
Said Rannveig Elíasdóttir
Mon, 17 Apr 2006 10:27

Flutningar afstaðnir

Jæja þá erum við loksins flutt inn í Dalsgerði 3c! Þvílíkur munur að vera komin á jarðhæð. Það er svo mikill stærðarmunur á íbúðunum að það er orðið auðvelt fyrir okkur að týnast í þessari. En ég var búin að gleyma því hvað það er mikið bras að flytja, sérstaklega þegar maður hefur bara fjóra daga til að tæma hina. Við eigum nú enn eftir að koma okkur betur fyrir og auðvitað kaupa ýmislegt. Það er ótrúlegt hvað það týnist til sem vantar þegar maður er að stækka aðeins við sig. En það kemur nú bara smátt og smátt nema þá að við vinnum í lottóinu á næstunni. En eftir að vera búin að taka smá kúrs í líkindareikningi á ég nú ekki von á því að það gerist.

Weblog posted by me myself
Rannveig Elíasdóttir
Said Rannveig Elíasdóttir
Wed, 12 Apr 2006 16:05

Litla hryllingsbúðin!

Var að koma af þessari hreint mögnuðu sýningu og mæli sko með að allir sjái hana. Minn frábæri bekkur tók sig til og skellti sér í leikhús þar sem að fjarnemarnir frá Akranesi voru í bænum. Komst á síðustu stundu inn í leikhúsið eftir að hafa rétt náð að kyngja síðasta bitanum áður en ég fór út. Fattaði svo þegar hléið kom að ég hafði gleymt að drekka með matnum í öllum látunum og ,,sjoppan" í leihúsinu tekur ekki kort svo ég er búin að liggja í krananum síðan ég kom heim. Einar stóð sig eins og hetja og svæfði báða drengina án þess að hafa brjóst né pela. Róbert var samt voða feginn að fá brjóstið sitt heim.
En yfir í allt annað, við fengum loksins lyklana af Dalsgerðinu í kvöld og nú er bara eftir að ferja allt draslið yfir. Eins og er er allt í kössum hjá okkur og varla hægt að ganga um íbúðina. En við þurfum að skila henni á þriðjudaginn svo við verðum vonandi fljótt búin að flytja allt. Svo höfum við nú alla páskana til að koma okkur fyrir svo tímasetningin gæti ekki verið betri.
Bless í bili*cool*
Weblog posted by me myself
Rannveig Elíasdóttir
Said Rannveig Elíasdóttir
Thu, 6 Apr 2006 22:46

Hvað er í gangi?

Eins og sést er ég afar dugleg við að skrifa hérna, bara á hverjum degi (alla vega til að byrja með). En ég tók eftir að ég lít út fyrir að eiga ekkert líf, bara talað um fjölskylduna, bara comment frá Einari og bara linkar á fjölskyldumeðlimi....En bara svo þið vitið þá á ég vini!!!! Ooogg það má alveg commenta á síðuna, bara svona svo ég fái eitthvað feedback. En það er svo sem ekki eins og ég sé eitthvað að auglýsa skrif mín svona út um allan bæ. Jú ég benti reyndar mínum elskulega bróður (FJÖLSKYLDUMEÐLIMUR!!!!) á bloggið mitt og hann, mesta karlremba sem ég þekki, finnst nú ekki merkilegt líf sem systir hans á. Hann tilkynnti mér það um daginn að konur sem eiga börn eyði nú ekki mikilli orku í að komast í gegnum amstur dagsins. Þær gera ekki neitt...þær eru ekkert að vinna. Þvílík bull og vitleysa!! Ekki nóg með það, ég fékk líka greinagóða starfslýsingu á mínu tilvonandi starfi. Sem er sem sagt í grófum dráttum ,,aðstoðamaður læknis og undirmaður hans sem gefur fólki sprautur og töflur". Já, þá vitið þið það að það kostar fjögurra ára háskólanám til að sprauta og gefa töflur. Það verður gaman að sjá þegar sumir kynnast því að búa ekki á hótel mömmu.
Með kveðju til Jonna....


Rannveig Elíasdóttir
Said Rannveig Elíasdóttir
Tue, 4 Apr 2006 23:07

Að drepa tímann!!!

Jæja ætli maður verði ekki að bætast í hóp allra annarra og byrja að blogga. Ekki það að ég hafi ekki nóg við tímann að gera. Eiginlega vantar mig svona kannski 5-6 klukkutíma í viðbót við sólarhringinn. Já nei það er sko ekki auðvelt að vera: heimavinnandi húsmóðir, háskólanemi, verðandi eiginkona, tveggja barna móðir og Rannveig Elíasdóttir en einhvern veginn á óútskýranlegan hátt næ ég að fara í öll þessi hlutverk á hverjum degi. Ég ætla þó að reyna að gefa mér smá tíma til að setja niður nokkur orð á þessa síðu af og til enda nauðsynlegt að gefa öðrum kost á að lítast inn í hugarheim sinn sem er afar frjór í mínu tilviki:D. En nú er þessi sólarhringur á enda og best að reyna ná smá hvíld áður en sá næsti tekur við.
Góða nótt!
Weblog posted by me myself
Rannveig Elíasdóttir
Said Rannveig Elíasdóttir
Tue, 4 Apr 2006 16:18

first << prev | Pages : 1 | next >> last